🌎
Hearts Kapall Spades FreeCell Cribbage Jatsí Gin Rummy Bridge Heim Fleiri leikir...
Mike

Lisa

Bill

Þú

Breyta leikmaður...

Smelltu á 'Gefa' til að hefja leikinn.

You are using a very old browser, that is no longer supported by this site. We recommend that you upgrade to one of the following browsers:

Download Mozilla Firefox Download Google Chrome

(hide)
Sýna stigatöflu
Þú & Bill
Mike & Lisa

Þú ert að reyna að henda , en það gæti verið hluti af meldingunni . Ertu viss um að þú viljir henda spilinu?

Bill getur lokað í þessari umferð og biður um leyfi þitt.

Ef þú segir já, munu þeir leggja niður restina af spilunum sínum og ljúka umferðinni. Ef þú neitar, mega þeir ekki loka í þessari umferð og leikurinn heldur áfram.

Mega þeir loka?

You & Bill Mike & Lisa
Heildarstig 0 0
Þröskuldur 0 0

VALKOSTIR

v0.1 (12345678)

Canasta

Allir leikir

Ákveðnar breytingar taka aðeins gildi eftir að síðunni er endurhlaðið.

Canasta Margmiðlunarlobby

Smelltu á borð til að taka þátt í margmiðlunarleik.

Einkaborð búið til

Kóðinn fyrir borðið er:

Gefðu þann kóða þeim sem þú vilt spila með, þeir geta notað hann til að ganga í leikinn. Eða sendu þeim hlekkinn hér að neðan, ef þeir smella á hann munu þeir ganga sjálfkrafa í:

Ganga í einkaborð

Vinsamlegast sláðu inn kóðann fyrir borðið:

Viltu búa til borð fyrir þig og vini þína? Þú getur Búa til einkaborð eða ef einhver hefur sent þér kóða geturðu Taka þátt í einkaborði.

Hvað viltu segja við andstæðinginn?

Engin borðumræða!
Vel gert!
Úps!
Ó nei :(
Megir þú hafa máttinn með þér!
Góður leikur!
Undirbúðu þig fyrir að tapa!
BUMM!
Æ!
Kem til baka!
Takk!
Þú ert mjög góður!
Vá!
Vertu öruggur!
Ég gerði stór mistök! :(
Mín mistök!
Fyrirgefðu
Þinn leikur!
Ég verð að fara.
🍀 Ég var heppinn!
Bill kenndi þér vel!
Tæknilegir örðugleikar
Spilaðu Ja Ja Ding Dong!
Það er eitthvað gott í þessum heimi, Mr. Frodo
😀
😂
🙁
😭
🤔
😠
😮
😜
😎
😵
🤩
😍
🤯
👑
🍀
👋
👏
👍
👎
🤘
👌
🖖

Get ekki notað fjölspilun

Fyrirgefðu, það lítur út fyrir að þú hafir slökkt á vafrakökum fyrir síðuna okkar. Fjölspilun virkar ekki án vafrakaka 🙁.

Tengingarvandamál

Tengingin þín við leikjaþjóninn er í vandræðum, en við erum að reyna að tengja þig aftur við leikinn. 🤓 Gefst upp á .

Leikur aftengdur

Fyrirgefðu, við gátum ekki tengt þig aftur við leikinn þinn. 🙁

Aftengt

Fyrirgefðu, þú varst aftengdur frá leiknum of lengi, við urðum að fjarlægja þig úr leiknum svo aðrir gætu haldið áfram að spila. 🙁

AFREK OPNAÐ

Það lítur út fyrir að þú gætir verið . Þú getur nú klæðst Beskar brynju meðan þú spilar.

Viltu setja á þig hjálminn?

Leikborð fannst ekki

Fyrirgefðu, við gátum ekki fundið leikborðið þitt á netþjónum okkar! 🙁

Loka, þagga, uppáhalds

Ef þú þaggar niður í leikmanni sérðu engin skilaboð sem hann sendir á meðan á leik stendur. Ef þú lokar á leikmann getur hann ekki lengur skorað á þig í leik eða gengið til liðs við borð sem þú ert við. Ef þú setur leikmann í uppáhald, fær hann lítið hjarta til að minna þig á hversu frábær hann er!

Ganga til liðs við borð með lokuðum notanda?

Þetta borð hefur leikmann () sem þú hefur lokað á áður (kannski undir öðru nafni). Ertu viss um að þú viljir ganga til liðs við það?

Sláðu inn nafn þitt

Vinsamlegast sláðu inn nafn til að sýna öðrum leikmönnum

Ertu viss um að þú viljir gefast upp í leiknum?

Aftengt

Þú hefur verið aftengdur vegna óvirkni. Þú getur alltaf tengst aftur með því að ýta á "Fjölspilun" hnappinn

Endurtekning?

Viltu spila annan leik með sömu spilurum?

Slökkva á tímamæli?

hefur lagt til að þú slökkvir á tímamælinum fyrir leikinn.

Til hamingju, þú vannst!

Þessi umferð
Þú & Bill Mike & Lisa
Samtals stig
Hönd refsing
Rauðir þristar
Náttúrulegar Kanöstur
Blandaðar Kanöstur
Lokunarbónus
Summa
Heildarstig
Þú & Bill Mike & Lisa
Fyrri stig
Umferðarstig
Heildarstig
Næsta umferð byrjar eftir X sekúndur...

Hi. This game is currently not ready for playing, it's in beta testing right now, we'll announce when it's ready.

If you've been given a beta-testing code by CardGames.io please enter it below and click the Enter button.

Við erum með app núna!

 

We've created a new CardGames.io app for your tabletphone! Allir leikirnir af vefsíðunni, í fullskjáham, með fleiri persónum! Viltu fá appið?

Welcome to the Matrix.

root@cardgames.io:

Gleðilegan Star Wars dag! Megi fjórði vera með þér!

Líkar þér ekki við Star Wars? Smelltu hér til að slökkva á þemanu. Eða komdu yfir til Facebook samfélagshópsins okkar og segðu okkur allt um það.

Gleðilega Hrekkjavöku! Líkar þér ekki Hrekkjavökuþemað? Smelltu hér til að slökkva á þemanu. Eða komdu yfir til Facebook samfélagshópsins okkar og segðu okkur allt um það.
Gleðilega Páska! Líkar þér ekki Páskaþemað? Smelltu hér til að slökkva á þemanu. Eða komdu yfir til Facebook samfélagshópsins okkar og segðu okkur allt um það.
Gleðilega Þakkargjörð! Líkar þér ekki Þakkargjörðarþemað? Smelltu hér til að slökkva á þemanu. Eða komdu yfir til Facebook samfélagshópsins okkar og segðu okkur allt um það.
Líkar þér ekki Jólþemað? Smelltu hér til að slökkva á þemanu. Eða komdu yfir til Facebook samfélagshópsins okkar og segðu okkur allt um það.
Líkar þér ekki Nýársþemað? Smelltu hér til að slökkva á þemanu. Viltu bara losna við flugeldana? Ýttu hér til að stöðva þá. Þú getur einnig komið yfir til Facebook samfélagshópsins okkar og segðu okkur allt um það.

Canasta Reglur

Kanasta, eins og flestir leikirnir sem við höfum, er til í mörgum útgáfum. Hins vegar er útgáfan á þessari síðu Sígild Kanasta, fjögurra manna liðaleikur spilaður með tveimur venjulegum 52 spila stokkum og fjórum jókerum: alls 108 spil. Við íhuguðum stuttlega að innleiða 'Modern American' Kanöstu, en ákváðum að þessi væri einfaldari og virtist vera algengari meðal almennra spilenda. Reglurnar sem við reiddum okkur á við þróunina má finna á pagat.com, og Gather Together Games.

Undirbúningur og Gjöf

Kanasta er spiluð af fjórum einstaklingum í tveggja manna liðum. Liðsfélagar sitja andspænis hvor öðrum. Tveir venjulegir spilastokkar, ásamt jókerum, eru sameinaðir til að mynda einn 108 spila spilastokk.

Gefðu hverjum leikmanni 11 spil og settu afganginn af spilunum á hvolf í miðju borðsins til að mynda stokkinn. Snúðu efsta spilinu af stokknum við til að mynda kastbunka. Ef efsta spilið í kastbunkanum er glæra eða rauður þristur skaltu snúa spilinu lárétt til að gefa til kynna að bunkinn sé frosinn (sjá hér að neðan). Haltu áfram að snúa spilum þar til þú færð spil sem er hvorki glært né rauður þristur.

Venjulega ætti hver leikmaður á þessum tímapunkti að setja alla rauða þrista sem þeir hafa í hendi sinni á borðið fyrir framan sig og draga jafnmörg spil til að skipta þeim út, en til einföldunar þá frestum við því þar til að viðkomandi leikmaður á að gera.

Spilagildi

Spil Gildi
Þristar til sjöur 5 stig
Áttur til kónga 10 stig
Ásar 20 stig
Tvistar 20 stig
Jókerar 50 stig

Að draga spil

Sá sem er vinstra meginn við þann sem gaf hefur leik. Hver umferð leikmanns hefst á því að annað hvort draga efsta spilið úr stokknum, eða reyna að taka kastbunkann. Þú mátt alltaf taka efsta spilið úr stokknum, en þú getur aðeins tekið upp bunkann ef þú getur strax lagt niður eða meldað efsta spilið í bunkanum.

Ef þú ætlar þér að taka bunkann skaltu leggja niður skyldumeldinguna strax. Þú mátt ekki taka bunkan né leggja aðrar meldingar niður fyrr en efsta spil bunkans hefur verið rétt meldað. í raunheimum myndirðu einfaldlega sýna tvö spil úr hendi sem gætu myndað meldinguna, fært kastspilið beint á borð ef meldingin er þar fyrir. Sértu að melda fyrsta meldi þíns liðs máttu ekki taka upp hauginn fyrr en þú hefur lagt niður lámarksgjöf í borð úr hendi. Einungis þá máttu taka það sem eftir er af kastbunka

Auk ofangreindra takmarkana á að taka bunkann, eru frekari takmarkanir settar á að taka hann þegar hann er "frystur" eða "lokaður". Eftirfarandi takmarkanir gilda:

  • Frosinn bunki:

    Bunkinn er frosinn: Ef kastbunkinn inniheldur rauðan þrist eða glært spil er bunkinn "frosinn". Frosinn bunka má aðeins taka ef þú getur lagt niður náttúrulega meldingu (án glærra spila) með efsta spilinu og spilum úr hendi. Þú verður að melda þeim spilum samtímis og þú tekur bunkann. Frosinn bunka skal merkja með því að snúa glærunni eða þristinum lárétt, þannig að það stendur þvert út úr kastbunkanum og er sýnilegt öllum.

    Kastbunkinn er einnig frosinn gagnvart þeim liðum sem ekki hafa lagt neitt út

  • Lokaður bunki: Ef það er rauður þristur, svartur þristur, eða glæra efst í kastbunkanum er hann lokaður. Þú getur ekki tekið upp lokaðan bunka undir neinum kringumstæðum.
Dæmi
  • Bill vill taka bunkann. Hann hefur í hendi sinni C6 C6 H7 D8, og efsta spilið í bunkanum er D6. Hann sýnir sexurnar og meldar þær með sexunni úr bunkanum. Hann tekur síðan restina af bunkanum og heldur áfram með umferðina.

  • Mike vill taka bunkann, en hann er frosinn. Hann hefur í hendi H5 D2 D2 S12 D12, og efsta spilið í bunkanum er S5. Venjulega gæti hann lagt niður H5 S5 D2, en þar sem haugurinn er frosinn verður hann að geta sýnt fimmupar til að taka bunkann. Hann dregur þess í stað úr stokknum.

  • Lisa vill taka bunkann. Efsta spilið í bunkanum er H13. Hún getur ekki meldað kóngana úr hendi, en lið hennar hefur lagt niður D13 D13 C13 H2. Hún má því einfaldlega bæta kastspilinu við kóngana á borði og tekur rest.

  • Bill vill taka bunkann, en hann er frosinn. Efsta spilið í bunkanum er H13. Lið hans hefur kónga á borði, en vegna þess að hann hefur ekki par af kóngum í eigin hendi getur hann ekki lagt af efsta spilið og verður því að draga úr stokknum.

Leikurinn

Þegar leikmaður hefur dregið úr stokknum eða bunkanum, má hann leggja niður spil úr hendi. Gild melding samanstendur af að minnsta kosti þremur spilum, og allt að 11. Hún verður að innihalda að minnsta kosti tvö náttúruleg spil, og getur innihaldið allt að þrjár glærur. Það verður alltaf að vera fleiri náttúruleg spil en glærur, og öll náttúruleg spil verða að hafa sama gildi. Til dæmis eru þrjár fimmur gilt útspil, en tveir jókerar og fimma ekki. Á sama hátt eru sex fjarkar gilt útspil, en sex fjarkar og fjórar glærur ekki. Þetta gerir stærsta meldið sem þú getur myndað 11 spil: öll átta spil af einni gerð, plús þrjár glærur.

Að leggja niður spil við núgildandi sett felur einfaldlega í sér að taka spil úr hendi, og legga niður á meldingu þegar í borði. Þú getur lagt af eins mörg eða fá spil í einu og þú vilt, en meldingin sem situr eftir á borðinu verður að vera lögleg.

Svarta þrista má ekki melda nema sem síðasta meld áður en leikmaður lokar umferð', og þá verður að melda náttúrulega án glærra.

Þegar leikmaður hefur lagt niður öll spilin sem hann vill í lýkur leikmaðurinn umferð sinni með því að kasta einu spili úr hendi sinni í kastbunkann. Leikmaðurinn á hans vinstri hönd gerir næst.

Þú og félagi þinn deilið borði, og því geturðu lagt þín spil við þau sem hann lagði niður áður. Á sama hátt, ef þú leggur niður spil sem núþegar eru í borði munu meldin sameinast í eina meldingu: ef þú eða félagi þinn leggur niður h10 d10 d10 á einum tímapunkti og síðar leggur hinn síðar s10 s10 c10 d2, verða settin tvö meldin sett saman á borðið til að mynda h10 d10 d10 s10 s10 c10 d2.

Lámarksgjöf

Fyrsta útspil sem lið gerir í hverri umferð er einungis gilt nái það ákveðnum lámarksstigafjölda, eftir því hversu mörg stig liðið hefur í heildina. Rauður þristur er ekki talinn með í þessu samhengi. Lámarksgjöfin getur samanstaðið af eins mörgum eða fáum meldingum og leikmaður kýs, svo lengi sem samanlagt gildi þeirra sé nægt til að uppfylla lámarkið

Leikurinn mun koma í veg fyrir að þú leggur niður spil þar til hann greinir að þú hafir í það minnsta eina gilda samsetningu úr hendi. Þegar þú hefur lagt út fyrsta meld mun leikurinn koma í veg fyrir að þú kastir af hendi fyrr en þú hefur náð þröskuldinum. Leikurinn mun koma í veg fyrir að þú meldir spil ef það veldur því að þú getir ekki lengur mætt lámarki.

Ef þú notar efsta spilið í bunkanum til þessa tilgangs máttu ekki taka upp restina af bunkanum fyrr en þú hefur komist yfir þröskuldinn. Ef þú getur ekki náð lámarkinu með þeim spilum þú þegar hefur í hendi plús efsta spili kastbunkans verður þú að draga úr stokknum.

Þröskuldarnir og tengd fyrstu meld takmörk má finna í eftirfarandi töflu.

Heildarstig liðs Lámarksgjöf
<0 15 (ekkert lágmark)
0 - 1500 50 stig
1500 - 3000 90 stig
≥3000 120 stig
Dæmi
  • Núverandi heildarstig ykkar í þessum leik eru 1100 stig. Þú þarft því 50 stig samtals fyrir fyrsta meldið. Þú hefur í hendi þinni h1 c1 d2 c5 h6 h7 c8 c4 c4 d4 c11 d13. Eina meldið sem þú getur gert sem fer yfir þröskuldinn er h1 c1 d2 sem er 60 stiga virði. Hins vegar er ekkert sem hindrar þig í að leggja niður c4 c4 d4 eftirá, þó þú sért ekki skyldugur til þess. Þú getur hins vegar ekki lagt einungis fjarkana og tvistinn, þar sem það setur þig aðeins í 35 - talsvert undir 50 stiga markinu

  • Núverandi heildarstig ykkar í þessum leik eru 1500 stig. Þú þarft því 90 stig samtals fyrir fyrsta meldið. Þú hefur í hendi þinni h1 c1 d2 c5 h6 h7 c8 c9 c9 d9 h9 d13. Að þessu sinni er ekki nóg að meld bara ásana. Hins vegar gætirðu meldað bæði h1 c1 d2, c9 c9 d9 fyrir 90 stig.

  • Núverandi heildarstig ykkar í þessum leik eru 3000 stig. Þú þarft því 120 stig samtals fyrir fyrsta meldið. Þú hefur í hendi þinni h1 c1 d2 h2 c5 h6 h7 c8 c4 c4 d4 h4 d13. Því miður er engin samsetning spila sem nær marki, og þú kastar því spili úr hendi (en kannski getur félagi þinn lagt út og bjargað þér úr klípunni).

  • Núverandi heildarstig ykkar í þessum leik eru 1800 stig. Þú þarft því 90 stig samtals fyrir fyrsta meldið. Þú hefur í hendi þinni h5 h5 h5 h5 d9 d9 d9 h13 d13 d13 c13 s3. Þó að sameinuð meld h5 h5 h5 h5 d9 d9 d9 h13 d13 d13 c13 myndi komast nákvæmlega í 90, myndi það einnig merkja þú hefðir einungis eitt spil eftir á hendi. Þú þarft Kanöstu til að loka, og því geturðu ekki lagt niður

Að loka

Þegar annað hvort lið hefur meld sem samanstendur af sjö eða fleiri spilum, þekkt sem Kanasta, má það lið loka. Leikmaður lokar með því að enda umferð með engin spil á hendi, hvort sem hann hefur lagt þau öll í borð eða kastað seinasta spilinu á kastbunkann. Ef liðið þitt hefur ekki Kanöstu á borðinu máttu ekki loka, né máttu enda umferð með engin spil á hendi. Leikurinn mun framfylgja þessu með því að meina þér að leggja niður spil ef slíkt leiðir til þess að þú hafir einungis eitt eða ekkert spil á hendi

Auk þess getur spilari valið að loka og læsa fyrir 100 stig aukalega. Til að loka og læsa verða eftirfarandi skilyrði að vera uppfyllt:

  • Þú verður að leggja niður öll spil í hendi samtímis: þú mátt ekki hafa lagt niður nein spil áður en þú lokar.
  • Þú verður að leggja niður í heilum meldum, þú mátt ekki leggja við spil þegar á borði.
  • Að minnsta kosti eitt af meldunum sem þú gerir verður að vera Kanasta, sjö spil eða fleiri

Þó varkárnar er krafist þegar lokað er og læst mun leikurinn gera sitt besta í að gefa þér grið: þegar þú lokar og læsir mun leikurinn athuga ef öll spilin sem þú lagðir út voru lögð út í þeirri umferð, og að þau gætu myndað heilar sagnir án þeirra spila sem fyrir voru. Sé það uppfyllt ætti hann að veita bónusinn

Lok umferðar

Þegar spilari lokar er umferðinni lokið. Liðin telja stigin sín, bæta við viðeigandi bónusstigum, og legga við heildarstigin sín. Hafi eitt lið unnið leikinn lýkur sögu þar. Annars er stokkurinn tekinn saman og gefið er upp á nýtt.

Umferðinni lýkur einnig þegar ekkert spil er eftir í stokknum. Almennt myndi leikurinn halda áfram þar til einn spilari getur ekki eða neitar að taka bunkann, en til að halda hlutunum einföldum hér þá endar umferðin þegar einhver kastar spili þegar ekkert spil er eftir í stokknum.

Að biðja um leyfi til að loka

Það er ekki alltaf góð hugmynd að loka eins hratt og hugur girnist: stundum gæti liðsfélagi þinn haft margar glærur á hendi. Það er því leyfilegt að spyrja félagann 'Má ég loka?' í upphafi umferðar. Félaginn getur þá svarað "já" eða "nei", og svarið er bindandi. Ef félaginn samþykkir, verður þú að loka. Ef félagi þinn neitar, máttu ekki loka.

Í þessum leik er hnappur til að spyrja "Má ég loka?", sem verður virkur þegar leikurinn greinir að þú getur lokað og þú hefur ekkert lagt niður þá umferð. Með því að ýta á hnappinn mun félagi þinn vera spurður, og svarið kemur um hæl. Hins vegar þarftu ekki að spyrja: það er fullkomlega löglegt að ákveða einhliða að fara út án þess að biðja um leyfi - reyndu bara að nota bestu dómgreind hvenær það er viðeigandi.

Stigagjöf

Í lok umferðar telur hver spilari stig sín samkvæmt listanum hér að neðan og bætir því við heildarstig sem hann hafði frá fyrri umferðum.

Ef lið hefur engin spil í borði (utan rauðra þrista) þegar mótherjar loka er gildi rauðu þristana dregnir frá stigum þeirra í stað þess að bæta þeim við.

  • Stig á borði: Leggið saman stigagildi allra spila í öllum meldum sem liðið ykkar lagði út, utan rauðu þristana
  • Stig í hendi: Draga frá stigagildi allra spila sem eftir eru í höndum ykkar
  • Náttúrulegar Kanöstur: Bætið við 500 stigum fyrir hverja náttúrulega Kanöstu sem liðið ykkar hefur í borði (7+ spila meld án glærra)
  • Blandaðar Kanöstur: Bætið við 300 stigum fyrir hverja blandaða Kanöstu sem liðið ykkar hefur í borði (7+ spila meld með að minnsta kosti einni glæru)
  • Rauðir þristar: Bætið við 100 stigum fyrir hvern rauðan þrist sem liðið ykkar lagði út. Ef liðið ykkar hefur alla þrista er þessi bónus tvöfaldaður (800 stig í stað 400)
  • Lokuð umferð: Bætið við 100 stigum ef liðið ykkar endaði umferðina með því að loka. 100 stig aukalega ef liðið lokaði og læsti.

Að vinna leikinn

Leiknum lýkur þegar eitt lið endar umferð með 5000 stig eða meir. Það lið sem fleiri stig hefur sigrar. Ef liðin eru jöfn þá er spilað áfram þar til jafnteflið er útkljáð.

Orðalisti

  • Stokkur: Stokkurinn sem gefið er úr og liggur á grúfu á miðju borði
  • Kastbunki: Bunkinn við hlið stokks þar sem leikmenn kasta af sér spilum í lok umferðar
  • Glærur: Spil sem hægt er að nota í staðinn fyrir hvaða annað spil sem er þegar verið er að melda - tvistarnir og jókerarnir.
  • Náttúruleg spil: Spil sem er ekki glærur.
  • Melding: Safn þriggja eða fleiri spila af sama gildi, og allt að þrjú villuspil, lögð niður af leikmönnum á meðan á leik stendur.
  • Náttúruleg melding: Meld sem inniheldur engar glærur.
  • Blandað Meld: Meld sem inniheldur að minnsta kosti eina glæru.
  • Lámarksgjöf: Samansafn þeirra meldinga sem lið leggur fyrst út, og nær tilteknu lámarki stiga.
  • Kanasta: Melding sem inniheldur sjö eða fleiri spil.
  • Loka: Að ljúka umferð þannig að þú hafir engin spil í hendi, sem lýkur umferðinni.
  • Lokað og læst: Að fara út án þess að hafa áður lagt niður spil, án þess að nýta spilin sem þegar eru í borði
Uppfærsla - September 2024:

Í upphaflegu útgáfu þessa leiks leyfðum við leikmönnum að melda glærur með Svörtum Þristum. Okkur var bent á að þetta er strangt til tekið ekki löglegt undir því regluverki sem við erum að vinna undir, og því höfum við breytt því þannig að svartir þristar verða að vera náttúrulegir til að vera gildir.

Til baka í leikinn

Um Canasta

Þessi netútgáfa af sígilda spilinu Kanasta er 43. leikurinn sem við gerum hér á Cardgames.io, og var gerð af Magnúsi árið 2024.

Kanasta er meðal þeirra leikja sem mest hefur verið beðið um gegnum árin, og hafði oft komið til tals þegar við ræddum nýja leiki. Við forðuðumst Kanöstu aðallega vegna þess að það er frekar flókið spil og við vorum ekki alltaf viss um að við gætum gert því góð skil, en við töldum að það væri fráheyrt að spilavefsíða hefði ekki einn af vinsælustu spilaleikjunum á skrá. Það er líka gott að hafa nokkra fleiri leiki úr Rommý fjölskyldunni, þar sem við erum svolítið þung á Vist á þessari síðu. Ef þú hefur einhverjar athugasemdir um það skaltu hafa samband og við munum sjá hvort við getum gert eitthvað

Þarftu að hafa samband við okkur?

Allar athugasemdir, kvartanir, villuskýrslur, spurningar eða annað ætti að senda til support@cardgames.io. Við getum ekki svarað öllum, en við reynum að svara eins mörgum og við getum. Ef þú ert bara með einfalda spurningu vertu þá viss um það sé ekki Nú þegar í algengar spurningar. Þú getur einnig oft fengið hjálp frá öðrum notendum í Facebook samfélagshópi okkar, þar sem margir af notendum okkar safnast saman. Komdu við og segðu halló!

Þú getur einnig fundið okkur á einhverjum eftirfarandi síðum:

Til baka í leikinn

Þetta er útgáfa 1.26.0 af Canasta.

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að geyma leikjagögn, óskir þínar og í greiningar- og auglýsingaskyni. Lestu meira í okkar Persónuverndarstefnu. Stillingar vafrakaka.

Cardgames.io er í eigu og rekið af Rauðás Games ehf. Öll réttindi áskilin.

Game failed to load

The primary script that runs our games seems to not have loaded, somehow.

This is in despite of the fact other scripts seem to have loaded up just fine.

This issue has been automatically reported and we're looking into it, but we'd be very grateful if you could send a report to support@cardgames.io with any further detail you can think of, including if you're running any script-blocking extensions, ad-blockers, or if your browser is set to block specific types of scripts.