Cribbage
Sígilda spilið Cribbage á uppruna sinn á fyrri hluta 17. aldar og er eignað enska skáldinu Sir John Suckling, sem aðlagaði það frá eldri leik sem kallaður var "Noddy."Known for its unique scoring system and distinctive pegging board, Cribbage quickly gained popularity in England and spread to the American colonies, becoming a favorite among sailors and fishermen for its portability and engaging gameplay.
Stigataflan
Cribbage notar venjulega það sem kallast "Cribbage borð" til að halda utan um stigin. Venjulegt Cribbage borð samanstendur af fjórum pinnum (tveimur fyrir hvorn leikmann) og tréborði með tveimur brautum, hver braut 121 holu löng, með nokkrum smávægilegum frávikum eftir útgáfu.
Leikmenn nota pinnana tvo til að srká hve mörg stig þeir hafa. Pinninn sem er lengra er kominn sýnir hversu mörg stig leikmaðurinn hefur núna, á meðan bakpinninn sýnir hversu mörg stig leikmaðurinn hafði áður. Í hvert skipti sem leikmaður skorar stig, sama hversu fá eða við hvaða aðstæður, færa þeir bakpinnann það mörg stig fram fyrir þann fremri, stökkvandi í framstöðu. Mismunurinn á milli pinnanna sýnir þannig alltaf hversu mörg stig voru skoruð síðast. Eigandi fyrsta pinnans sem nær 121 stiga holunni er sigurvegari.
Þó að það sé mælt með því að nota stigaborð er Cribbage borðið tæknilega valfrjálst þar sem þú getur haldið utan um stigin með blað og penna. Hins vegar eru Cribbage borð venjulega auðfáanleg fyrir tiltölulega lág verð.
Markmið
Markmiðið í Cribbage er að vera fyrsti leikmaðurinn sem fær 121 stig. Leiknum er skipt í þrjá fasa, Drátturinn, Leikurinn og Opinberunin. Hver hluti er útskýrður í smáatriðum hér að neðan.
Þessi útgáfa af Cribbage er fyrir tvo leikmenn, margar aðrar útgáfur eru mögulegar, en þessar reglur eru aðeins fyrir þá útgáfu sem við höfum valið fyrir þessa síðu. Það eru mikið af reglum, ég hef reynt að útskýra þær sem best ég get hér, en þú getur líka skoðað reglurnar á www.pagat.com eða á CribbageCorner.com, báðar þessar síður eru góðir staðir til að læra hvernig Kapall virkar.
Drátturinn
Leikurinn byrjar með því að báðir leikmenn draga spil úr stokknum til að ákvarða hver gefur. Sá sem fær lægra spilið gefur fyrst. Ef leikmenn draga jafnhá spil þá draga þeir aftur. Þessi leið til að ákveða hver gefur er einungis nýtt í upphafi leiks, í öllum umferðum þar eftir munu leikmenn skiptast á að gefa.
Gefin eru 6 spil til hvors leikmanns. Hver leikmaður velur síðan tvö spil úr hönd sinni til að setja á grúfu í vögguna. Vaggam tilheyrir þeim sem gefur og er notuð í endanum á umferðinni til að fá auka stig. Hvaða spil þú velur að setja í vögguna er mikilvæg ákvörðun, þar sem það hefur áhrif á hversu mörg stig þú getur fengið í seinni hluta leiks.
Á þessum tímapunkti hefur hver leikmaður fjögur spil í hendi, og Vaggan hefur fjögur spil. Stokkurinn er síðan settur til hliðar, og sá sem ekki gefur skiptir stokknum í tvent og sýnir síðan efsta spilið. Þetta spil er kallað upphafsspil eða skurðkortið. Ef upphafsspilið er tígull þá fær sá er gaf strax 2 stig. Þetta er þekkt sem tvo fyrir hælana hans. Þegar upphafskortið hefur verið sýnt eru leikmennirnir tilbúnir til að halda áfram í næsta hluta leiksins.
Leikurinn
Sá er ekki gaf byrjar með því að leggja spil á borðið og tilkynnir gildi þess, t.d. leggur niður sexu og tilkynnir 'Sex'. Sá er gaf leggur síðan spil og tilkynnir samanlagt gildi spilanna á borðinu, t.d. hann leggur niður fimm og tilkynnir 'ellefu'. Þetta heldur áfram með leikmennina sem leggja niður hvert spil á fætur öðru er þar til leikmaður getur ekki lagt annað spil án þess að samanlagt gildi fari yfir 31. Leikmaðurinn segir þá 'Gerðu' og hinn leikmaður getur þá haldið áfram að leggja spil niður meðan hann getur án þess að fara yfir 31. Hann segir þá líka 'Gerðu'. Sá leikmaður sem lagði niður seinasta spilið fær 1 stig ef summan er undir 31 en 2 stig ef summan á borðinu er nákvæmlega 31. Leikmenn byrja þá upp á nýtt: summan núllast á ný og leikmenn halda áfram með þau spil sem eftir eru á hendi. Sá leikmaður sem ekki lagði seinata spil niður byrjar á nýrri röð. Ás er talinn sem 1, mannspil eru talin sem 10 og önnur spil eru venjulegt gildi sitt.
Meðan á leik stendur má fá stig með mörgum hætti. Stig eru fengin þegar þú leggur spilin þín niður þegar röðin uppfyllir ákveðin skilyrði, t.d. ef andstæðingur þinn hefur nýlega lagt 4 og þú leggur annan fjarka niður - þá færð þú stig fyrir 'par'.
Leikmenn tilkynna alltaf summu spilanna á borðinu þegar þeir leggja nýtt spil. Ef þeir fá stig tilkynna þeir stigin líka, t.d. 'fimmtán fyrir 2', eða 'þrjátíu og einn fyrir 2'. Þegar leikmaður segir 'Gerðu' mun hinn leikmaður segja '1 fyrir ger'. Hann gæti líka sagt '1 fyrir seinasta spil'.
Stigagjöf í Leiknum
- Fimmtán: Fyrir að bæta við spili sem gerir summuna 15, 2 stig.
- Par: Fyrir að bæta við spili af sama gildi og spilið sem var seinast lagt, 2 stig.
- Þrenna: Fyrir að bæta við spili af sama gildi og seinustu tvö spilin, fáðu 6 stig.
- Tvöfalt hefðarpar (Fjórir eins): Fyrir að bæta við spili af sama gildi og síðustu 3 spil, 12 stig.
- Röð (runa) af þrem eða fleiri spilum: 1 stig fyrir hvert spil í rununni. Spilin þurfa ekki að vera í réttri röð, en þau þurfa að vera öll saman. T.d. H2 C8 D6 H7 S5 er 4 spila runa því C8 D6 H7 S5 geta verið endurröðuð í S5 D6 H7 C8, en H2 C5 C7 D7 S6 er ekki runa því sjöan í miðjunni brýtur upp 5-6-7 rununa. Í grunninn ef þú getur tekið n spil sem eru saman og endurraðað þannig að öll n spil myndi töluröð þá er það runa.
- Seinasta spil, summa minna en 31: 1 stig.
- Seinasta spil, summa nákvæmlega 31: 2 stig.
Mikilvægt að veita því hug að þó svo að öll mannspil telji sem 10, þú getur ekki búið til par eða hefðarpar með mismunandi mannspilum. Tvær drottningar eru par, en ekki konungur og gosi þó bæði spil séu virði tíu stiga.
Mikilvægt að taka eftir því að eitt og sama spilið getur veitt stig oft. T.d. ef spilin á borðinu eru DA C7 og þú leggur niður H7 þá færðu 2 stig því 1+7+7=15 og 2 stig því 7+7 er par af sjöum. Í þessu tilfelli myndir þú tilkynna 'Fimmtán fyrir 4'.
Þessi hluti leiksins heldur áfram þar til báðir leikmenn hafa spilað öllum spilum. Stigin eru uppfærð strax og leikmaður fær stig, og ef leikmaður nær í mark, 121, þá er leik strax lokið
Opinberunin
Þegar Leiknum er lokið taka leikmenn spilin sín aftur af borðinu og er nú tími til að reikna stigin fyrir hendur þeirra og vöggu. Þessi stig eru alltaf reiknuð í sömu röð: hendi þess sem ekki gaf, hendi þess sem gaf, og vagga. Eins og áður er stigum bætt við stigatöfluna strax þegar þau eru reiknuð, og ef leikmaður nær 121 leikurinn er leik lokið strax, hinn leikmaðurinn fær ekki að telja stigin sín. Þetta þýðir að það er engin möguleiki á jafntefli, eða því að báðir leikmenn fara yfir 121 í sömu umferð. Sá er gefur mun venjulega fá fleiri stig þar sem hann fær stig fyrir bæði hendi sína og vöggu, en hinn leikmaðurinn fær stig fyrir hendi sína fyrst, svo ef báðir eru nálægt 121 gæti sá er ekki gaf unnið, þó svo að sá er gefur hefði fengið fleiri stig ef honum væri leyft að telja þau.
Stigin í Opinberunini
Stigin fyrir Opinberunina eru svipuð og stigin fyrir Leikinn, en með nokkrum mikilvægum frávikum. Upphafsspilið er notað hér með báðum höndum og vöggunni, svo að ein hendi er hendin + upphafsspil, og vaggan er vaggan + upphafsspilið. Þú getur notað sama spil oft til að gá stig, t.d. það getur verið hluti af pari og einnig hluti af runu.
- Einn fyrir hans herramann: Fyrir að hafa gosa í sama lit og upphafskortið, fáðu 1 stig. T.d. upphafskortið er H4, þú hefur HJ.
- Fimmtán: Hvaða samsetning af spilum sem samanlagt eru 15. Þú getur endurnýtt spil, þannig að ef þú hefur HJ, SJ og C5 færðu 2 stig fyrir HJ C5 og önnur 2 stig fyrir SJ C5.
- Pör: Fyrir hvaða par af spilum, t.d. SQ DQ, fáðu 2 stig.
- Þrír eins (Þrír af sama tagi): Fyrir hvaða þrjú spil af sama tagi, t.d. S8 C8 H8, fáðu 6 stig.
- Fjórir eins (Fjórir af sama tagi): Fyrir hvaða fjögur spil af sama tagi, t.d. HA SA DA CA, fáðu 12 stig.
- Röð (röð) af þremur eða fleiri spilum: Fáðu 1 stig fyrir hvert spil í röðinni. T.d. fyrir SA H2 C3 D4, fáðu 4 stig.
- Fjórlitur, 4 spil: Ef öll spilin í hendi þinni eru í sömu sort, t.d. SA S5 S9 SJ, 4 stig. Þessi fjögur spil verða öll að vera í hendi þinni, þú getur ekki haft þrjú spil í hendinni + upphafsspilið. Fjórlitur getur ekki verið notað þegar verið er að meta vögguna, aðeins fyrir hendina.
- Fimmlitur, 5 spil: Ef öll spilin í hendi, og upphafsspilið, eru í sömu sort, t.d. SA S5 S9 SJ SQ, 5 stig. Þú getur einnig fengið Fimmlit í vöggu ef öll vaggan og upphafsspilið eru í sömu sort.
Skunkur og Tvöfaldur Skunkur
Skunkur er þegar leikmaður vinnur með 30 stigum, þar sem andstæðingurinn hefur minna en 91 stig þegar leik lýkur. Tvöfaldur skunkur er þegar leikmaður vinnur með yfir 60 stigum, andstæðingurinn hefur færri en 61 stig. Venjulega telst skunkur sem sigur í tveim leikjum og tvöfaldur skunkur sem 3. Hins vegar spilum við ekki marga samhangandi leiki hér á síðunni, við erum bara að velta okkur upp úr einum leik í einu. Við sýnum þér samt þegar þú færð skunka og höfum tölu á þeim á tölfræði síðunni.
Og flóknara er það ekki!
Viltu spila Cribbage og prófa nýfengna hæfileika þína? Spilaðu umferð á Cardgames.io.