🌎
Hearts Kapall Spades FreeCell Cribbage Jatsí Gin Rummy Bridge Heim Fleiri leikir...

Euchre

Euchre er vinsæll leikur í mörgum spilahringjum og hefur verið vinsæll í hinum enskumælandi heimi síðan snemma á 19. öld. Uppruni Euchre er umdeildur, hvort sem það er afbrigði af Ecarté, Triomphe, eða þýska leiknum Juckerspiel sem ber svipað nafn og hefur einnig kunnugleg hugtök eins og "Bauer" og "Marsch"; hvort sem leikurinn er fæddur í Ameríku af þýskum eða breskum innflytjendum, eða var einfaldlega leikur sem þróaðist innanlands í Fíladelfíu.

Eftirfarandi reglur eru fyrir Ameríska Knock-Euchre, sem notar 24 spila Piquet stokk (eða venjulegan 52 spila stokk með þar sem öll spil lægri en níu eru fjarlægð).

Yfirlit

Euchre er vistleikur með trompi, spilaður af fjórum einstaklingum í tveggja manna liðum. Grunnleikurinn er svipaður og í Félagsvist, þ.e. hver leikmaður spilar einu spili í einu, hæsta spilakortið í sortinni sem leiðir er vinnur slaginn, nema einhver hafi spilað trompi. Mikilvægur munur frá félagsvist er að eitt af liðunum nefnir tromp og verður þá að vinna meirihluta slaganna sem í boði er. Leikurinn er spilaður yfir nokkrar umferðir þar til eitt lið hefur fengið 10 stig.

Að gefa

Euchre notar óhefðbundinn 24 spila stokk, sem samanstendur af öllum spilum níu eða hærri. Fyrstur til að gefa er valið að handahófi, en sá er gefur færist svo réttsælis um borðið. Fimm spil eru gefin til hvers leikmanns. Þegar búið er að gefa er efsta spilinu í stokknum snúið upp, og næsti fasi hefst...

Að nefna tromp

Sá er vinstra meginn við þann er gefur velur fyrst hvort hann vilji að tromp umferðar sé það sem spilið í miðju gefur til kynna, eða hvort hann segi pass. Segi hann pass tekur sá sem er á hans vinstri hönd við. Vilji einhver 'panta trompið' sem er í borði endar fasinn strax. Sort þess spils sem er í miðju verður tromp, sá er gaf tekur spilið úr miðjunni og kastar öðru spili á grúfu úr sinni hendi.

Ef enginn vill panta sortina í borði hefst hringurinn á ný. Nú mega menn einfaldlega nefna hvaða sort verður að trompi, ellegar segja pass. Ef fyrstu þrír leikmennirnir segja pass þá verður sá sem gefur að nefna tromp, hvort sem hann vill það eða ekki.

Þegar tromp hefur verið ákveðið byrjar umferðin. Sá er pantaði sortina í borði eða nefndi tromp - ásamt liðsféla hans - nefnist gerandi. Hitt liðið verða verjendur. Markmið gerenda verður að ná meirihluta slaga, en verjendur sporna við því.

Að spila einn

Sá gerandi sem vinnur sögnina má spila einn. Ef leikmaður velur þetta þá leggur samstarfsfélagi hans niður hendi sína og tekur ekki frekar þátt þá umferð. Að spila einn er erfiðara en að spila með félaga, en er fleiri stiga virði takist það.

Gildi Tromps

Uppröðun trompsins er ögn undarleg í Euchre. Tromp vinnur ávallt aðrar sortir, en innan trompsins er gosinn í trompi (Hægri gosi) hæsta spilið. Síðan, óvenjulega, er samliti gosinn (Vinstri gosinn) næst hæsta spil trompsins! Hin spilin í trompi eru svo í réttri röð þareftir. Þar með væri rétt röðun Hjartatromps sem fylgir:

  1. Hjartagosi (Hægri gosi)
  2. Tígulgosi (Vinstri gosi)
  3. Ás
  4. Kóngur
  5. Drottning
  6. 10
  7. 9

Spilið

Spilið gengur eins fyrir sig og flest önnur spil af þessari gerð. Sá er leiðir leggur út hvaða spil sem er, og spilað er svo til vinstri. Hver leikmaður leggur eitt spil út í sömu sort og það sem leiðir, nema ef þeir eiga ekkert spil í þeirri sort. Mega þeir þá spila hvaða spili sem er. Hæsta spilið í þeirri sort sem leitt var í tekur slaginn, nema ef einhver trompaði. Í því tilfelli tekur hæsta tromp slaginn. Leikmaðurinn sem tók slaginn leiðir næsta slag.

Stigagjöf

Mundu að liðið sem valdi trúmpið eru 'Gerendur' og hitt liðið eru 'verjendur'. Lið sem vinnur 3 eða fleiri slagi vinnur höndina og fær stig, en hitt liðið fær engin stig. Lið geta einnig fengið fleiri stig ef gerandinn spilaði einn. Stigataflan er eftirfarandi:

Niðurstaða Verjendur Vörn
Gerendur taka 3 eða 4 slagi. 1 0
Gerendur taka 5 slagi. 2 0
Gerendi spilar einn og tekur 3 eða 4 slagi. 1 0
Gerandi spilar einn og tekur 5 slagi. 4 0
Verjendur taka þrjá slagi eða fleiri. 0 2

Að vinna

Lið vinnur þegar það hefur fengið 10 stig. Í sumum útgáfum þarf að vinna með tveggja stiga mun.

Og flóknara er það ekki!

Viltu spila Euchre og prófa nýfengna hæfileika þína? Spilaðu umferð á Cardgames.io.

Þetta er útgáfa 1.26.1 af Euchre.

Þessi vefsíða notar vafrakökur til að geyma leikjagögn, óskir þínar og í greiningar- og auglýsingaskyni. Lestu meira í okkar Persónuverndarstefnu. Stillingar vafrakaka.

Cardgames.io er í eigu og rekið af Rauðás Games ehf. Öll réttindi áskilin.

Game failed to load

The primary script that runs our games seems to not have loaded, somehow.

This is in despite of the fact other scripts seem to have loaded up just fine.

This issue has been automatically reported and we're looking into it, but we'd be very grateful if you could send a report to support@cardgames.io with any further detail you can think of, including if you're running any script-blocking extensions, ad-blockers, or if your browser is set to block specific types of scripts.