Ákveðnar breytingar taka aðeins gildi eftir að síðunni er endurhlaðið.
Skák Margmiðlunarlobby
Smelltu á borð til að taka þátt í margmiðlunarleik.
Einkaborð búið til
Kóðinn fyrir borðið er:
Gefðu þann kóða þeim sem þú vilt spila með, þeir geta notað hann til að ganga í leikinn. Eða sendu þeim hlekkinn hér að neðan, ef þeir smella á hann munu þeir ganga sjálfkrafa í:
Fyrirgefðu, það lítur út fyrir að þú hafir slökkt á vafrakökum fyrir síðuna okkar. Fjölspilun virkar ekki án vafrakaka 🙁.
Tengingarvandamál
Tengingin þín við leikjaþjóninn er í vandræðum, en við erum að reyna að tengja þig aftur við leikinn. 🤓 Gefst upp á
.
Leikur aftengdur
Fyrirgefðu, við gátum ekki tengt þig aftur við leikinn þinn. 🙁
Aftengt
Fyrirgefðu, þú varst aftengdur frá leiknum of lengi, við urðum að fjarlægja þig úr leiknum svo aðrir gætu haldið áfram að spila. 🙁
AFREK OPNAÐ
Það lítur út fyrir að þú gætir verið . Þú getur nú klæðst Beskar brynju meðan þú spilar.
Viltu setja á þig hjálminn?
Leikborð fannst ekki
Fyrirgefðu, við gátum ekki fundið leikborðið þitt á netþjónum okkar! 🙁
Loka, þagga, uppáhalds
Ef þú þaggar niður í leikmanni sérðu engin skilaboð sem hann sendir á meðan á leik stendur. Ef þú lokar á leikmann getur hann ekki lengur skorað á þig í leik eða gengið til liðs við borð sem þú ert við. Ef þú setur leikmann í uppáhald, fær hann lítið hjarta til að minna þig á hversu frábær hann er!
Ganga til liðs við borð með lokuðum notanda?
Þetta borð hefur leikmann () sem þú hefur lokað á áður (kannski undir öðru nafni). Ertu viss um að þú viljir ganga til liðs við það?
Áskorun send
Þú hefur skorað á í leik. Bíð eftir svari þeirra...
Þú hefur verið skorað á
hefur skorað á þig í leik!
Áskorun hafnað
Áskorun samþykkt
samþykkti áskorunina þína! Augnablik, við erum að setja upp leikinn þinn...
Áskorun samþykkt
Þú samþykktir áskorun frá ! Augnablik, við erum að setja upp leikinn þinn...
Áskorun aflýst
Fyrirgefðu, aflýsti boðinu sínu.
Þú hefur aftengt
Þú ert nú aftengdur, aðrir leikmenn sjá þig ekki á netinu og geta ekki skorað á þig. Þú getur alltaf farið aftur á netið með því að smella á Fjölspilun hnappinn.
Forrit úrelt
Hæ. Það lítur út fyrir að þú sért að nota eldri útgáfu af forritinu okkar. Vinsamlegast uppfærðu í nýjustu útgáfuna til að halda áfram að spila fjölspilunarleiki okkar 😎.
Skák er eitt elsta borðspil sem enn er spilað í dag. Reglurnar í skák hafa breyst mikið síðan uppruna þess, eru nú staðlaðar og flestum kunnungar. Reglurnar sem eru kynntar hér eru grunnreglur tafls, en nánari yfirlit yfir hvernig leikurinn er spilaður er hægt að finna á Wikipedia eða á opinberum vef Alþjóðlega skákbandalagsins.
Uppsetning
Skák er spilað á 8x8 köflóttu borði, þar sem raðirnar eru númeraðar frá 1-8 og dálkarnir merktir frá 'A' til 'H'. Reiturinn merktur sem 'A1' ætti að vera svartur. Leikmaðurinn sem stjórnar hvítu mönnunum setur sína menn á röð 1 og 2, og leikmaðurinn sem spilar svart setur menn sínar á raðir 7 og 8. Peðin eru sett á raðir 2 og 7. Frá 'A' dálk er mönnum raðað sem fylgir: Hrókur, Riddari, Biskup, Drottning, Kóngur, Biskup, Riddari, Hrókur. Hvítur byrjar alltaf.
Markmið leiksins
Leikurinn getur lokið undir eftirfarandi kringumstæðum:
Ef kóngi andstæðings er ógnað, en andstæðingurinn hefur engan löglegan leik til að koma í veg fyrir að kóngurinn sé felldur, þá hefur þú unnið. Þetta er kallað 'Skák og mát'
þegar annar leikmaðurinn gefst upp
Fellur á tíma. Þegar spilað er gegn öðrum spilurum á þessari síðu gefum við leikmönnum eina mínútu til að ákveða sig, og korter samtals.
Ef kóngur leikmanns er ekki í hættu á að verða tekin en leikmaðurinn hefur engar löglegar hreyfingar samt, þá er það patt: leikurinn endar í jafntefli.
Leikurinn er einnig jafntefli ef eftirfarandi aðstæður koma upp:
hvorugur spilari hefur nóg efni til að máta
Sama staða er endurtekin þrisvar sinnum
50 samfelldar hreyfingar hafa liðið þar sem hvorki peð er fært né maður drepinn
Leikmenn samþykkja að enda leik í jafntefli
Löglegir leikir
Manngangurinn er sem fylgir:
Biskupinn getur fært sig hvaða fjölda reita sem er á ská.
Hrókurinn getur fært sig hvaða fjölda reita sem er á sömu röð eða dálki.
Drottningin getur fært sig hvaða fjölda reita sem er á sömu röð, dálki eða á ská - líkt og hrókur og biskup.
Riddarinn færist á næsta reit sem er hvorki á sömu röð, dálki eða ská. Í rauninni færist riddarinn í 'L', tvo reiti lóðrétt eða lárétt, og svo einn reit þvert á það. Riddarinn er eini spilari sem getur 'hoppað yfir' aðra menn.
Peðið færist einn reit áfram, alltaf í átt að endaröð andstæðings. Peð sem ekki hefur verið hreyft getur fært sig tvo reiti í stað eins. Peð geta einungis drepið aðra menn á ská.
Konungurinn getur einungis fært sig einn reit í hvaða átt sem er, nema þegar hrókerað er. Konungurinn getur aldrei sett sig viljandi í skák.
Að skáka konungi
Þegar einhver maður á borði ógnar því að drepa konung andstæðings í næsta leik er konungurinn sagður 'vera í skák'. Leikmaður sem er í skák verður að losa konunginn sinn úr skákinni; hvort sem það er með því að færa konunginn úr vegi, drepa manninn sem ógnar máti, eða setja annann mann milli konungs og andstæðings. Leikmaður sem á engan löglegan leik til að losa skákina hefur tapað leiknum (kallað að vera mátaður). Margir menn geta skákað samtímis, og verður að komast út úr öllum skákum í einu. Leikmaður má ekki vera áfram skákaður. Leikmaður má aldrei valda því að hans eigin konungur sé í skák.
Aðrir löglegir leikir
Framhjáhlaup Er sérstakur leikur sem peðin eru fær um. Þegar peð er fært tvo reiti frá upphafsreit sínum og er sett við hlið annars peðs getur síðarnefnda peðið drepið það fyrrnefnda eins og það hefði bara verið fært einn reit. Til dæmis, segjum að hvítt peðið sé sett á B5. C7 peð er fært tvo reiti áfram á C5. Hvíti leikmaðurinn getur fært B5 peðið á C6 og tekið C7 peðið. Framhjáhlaup eru einungis leyfileg strax eftir að andstæðingurinn færði peðið sem um ræðir. Rétturinn rennur út strax og andstæðingur leikur næsta leik.
Hrökering Konungur og Hrókarnir geta undir ákveðnum kringumstæðum hrókerað. Ef hvorki konungur né hrókur hafa verið færðir í leiknum, reitirnir þeirra á milli eru auðir, og konungur þarf ekki að fara yfir neina reiti sem andstæðingur ógnar, getur leikmaðurinn fært konung sinn tvo reiti að hrók og hrókinn hinumegin við konunginn. Til dæmis, segjum að hvíti konungurinn sé á E1 og hvíti hrókurinn á A1. Allir reitir þeirra á milli eru auðir og ekki undir ógn. Hvíti leikmaðurinn getur, í einni hreyfingu, fært konunginn tvo reiti til vinstri (til C1) og hrókinn þrjá reiti til hægri (til D1). Leikmaðurinn gæti einnig hrókerað til hægri, fært konunginn til G1 og H1 hrókinn til F1.
Peð kemst að endaröð. Peðum sem komast þvert yfir borðið að endaröð andstæðings (hvít peð að 8-röðinni, svört á 1-röðina) er skipt út fyrir Hrók, Riddara, Biskup, eða Drottningu. Peð má ekki verða að kóng né halda áfram að vera peð. Því getur einn leikmaður verið mest með níu drottningar á borði: þá sem hann byrjaði með og peðin átta komist þau öll í mark
Skák hefur lengi verið leikur sem beðið var um, en við hikuðum oft við það sökum þess að góðir skákandstæðinga eru oft snúnir í smíðum. Við gerðum okkar eigin lausn fyrir auðvelda og miðlungs vélmennið (Bill og Bill sr.) en nýttum okkur opnu lausnina Garbochess-JS fyrir Beth sem skrifuð var af Gary Linscott, þar sem við gátum ekki gerð okkar eigin andstæðinga nægilega sterka, við erum ekki skákmeistarar því miður 🙂.
En í grunninn var helsta markmiðið okkar einfaldlega að búa til einfaldan og skemmtilegan skák-leik sem fólk getur spilað saman á. Margar aðrar síður hafa mjög góða tafl-leiki, t.d. chess.com og lichess.org en þær geta oft verið ögn þungar og illskiljanlegar: stundum viltu bara spila skák á netinu en ekki hugsa um stigatöflur og búa til notendaaðganga og allt þvíumlíkt, og það er þar sem við komum inn í myndina, við ætlum að vera einfaldasta útgáfan sem völ er á!
Grafíkin var gerð af Þóri Celin, verktaka og grafískum hönnuði sem teiknaði einnig myndirnar fyrir SpaceBugs.io. Þú getur farið á síðuna hans og séð önnur verk sem hann hefur unnið að!
Við bjuggum einnig til einfalda vefsíðu til að stilla upp skákborðum og vista sem myndir, með sömu grafík og við notum hér. Ef þú þarft mynd af ákveðinni stöðu getur þú auðveldlega búið hana til, eða bara sett inn FEN streng hennar á chessboardimage.com
Þarftu að hafa samband við okkur?
Allar athugasemdir, kvartanir, villuskýrslur, spurningar eða annað ætti að senda til support@cardgames.io.
Við getum ekki svarað öllum, en við reynum að svara eins mörgum og við getum. Ef þú ert bara með einfalda spurningu vertu þá viss um það sé ekki
Nú þegar í algengar spurningar.
Þú getur einnig oft fengið hjálp frá öðrum notendum í
Facebook samfélagshópi okkar,
þar sem margir af notendum okkar safnast saman. Komdu við og segðu halló!
Þú getur einnig fundið okkur á einhverjum eftirfarandi síðum:
Þessi vefsíða notar vafrakökur til að geyma leikjagögn, óskir þínar og í greiningar- og auglýsingaskyni. Lestu meira í okkar Persónuverndarstefnu. Stillingar vafrakaka.
Cardgames.io er í eigu og rekið af Rauðás Games ehf. Öll réttindi áskilin.
Game failed to load
The primary script that runs our games seems to not have loaded, somehow.
This is in despite of the fact other scripts seem to have loaded up just fine.
This issue has been automatically reported and we're looking into it, but we'd be very grateful if you could
send a report to support@cardgames.io with any further detail you can think of, including if you're running
any script-blocking extensions, ad-blockers, or if your browser is set to block specific types of scripts.